Námskeið í sérhæfðri endurlífgun barna II (EPLS)

Endurlífgunarráð Íslands stendur fyrir tveim námskeiðum í sérhæfði endurlífgun barna II (EPLS) í samvinnu við Sjúkrahúsið á Akureyri og

Námskeið í sérhæfðri endurlífgun barna II (EPLS)

Endurlífgunarráð Íslands stendur fyrir tveim námskeiðum í sérhæfði endurlífgun barna II (EPLS) í samvinnu við Sjúkrahúsið á Akureyri og Sjúkraflutningaskólann. Fyrra námskeiðið fer fram 29.-30 janúar 2013 og það seinna 31. janúar - 1. febrúar 2013. Námskeiðsgjald er 80.000 kr bók og skírteini innifalin. Skráning fer fram í netfangið:  Hrafnhildur@fsa.is

Námskeiðið er byggt á stöðlum evrópska endurlífgunarráðsins (útgefnar í október 2010) og kennt samkvæmt því. Námskeiðið er samansett af fyrirlestrum, verklegum æfingum og umræðum. Í fyrirlestrum er farið yfir þætti sem koma að því að þekkja, skoða og vera fær um að meðhöndla lífshættuleg veik og slösuð ungbörn og börn. Farið er í vinnuferla í grunn- og sérhæfðri endurlífgun, lestur hjartatakta, forvarnir öndunar- og hjartastopps, meðhöndlun vökva- og súrefnisskorts, krampa,  ofl. Í verklegum stöðvum er lögð áhersla á frumskoðun og endurlífgun, öndunarhjálp, meðhöndlun slasaða barnsins og teymisvinnu. Mest er áhersla á verklegar æfingar og virka þátttöku nemandans.


Endurlífgunarráð Íslands