Vísbendingar um góðan árangur af endurlifgun á Íslandi samkvæmt EuReCa TWO

Grein í Resuscitation tímariti ERC þar sem Bergþór Steinn Jónsson er einn höfunda má sjá niðurstöður EuReCa TWO yfir árangur í endurlífgun.

Vísbendingar um góðan árangur af endurlifgun á Íslandi samkvæmt EuReCa TWO

Í grein sem birtist í Resuscitation tímariti ERC á dögunum má sjá vísbendingar um góðan árangur endurlífgunar á Íslandi. Rannsóknin náði til 28 landa í Evrópu og var heildarfjöldi tilfella yfir 37.000. Ísland er með næst besta árangur í endurlifgun en tilfellin á Íslandi eru fá og munurinn því ekki tölfræðilega marktækur.

Gögnin frá Íslandi voru unnin af Bergþóri Stein Jónssyni sem er meðhöfundur að greininni. Gögnin koma frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og slökkviliði Akureyri, rannsóknartímabilið var þrír mánuðir. Þrátt fyrir að að gagnasöfnunin nái ekki yfir allt landið nær hún til langstærsta íbúðafjölda landsins.

Bergþór Steinn Jónsson starfaði sem ung- og deildarlæknir á Sjúkrahúsinu á Akureyri. En hefur nú hafið sérnám í bráðalækningum við Mayo Clinic College of Medicine í Bandaríkjunum. Við óskum Bergþóri til hamingju með þessa birtingu.

Greinina í heild má lesa hérna


Endurlífgunarráð Íslands