Í tilefni Alþjóðlega endurlífgunardagsins í dag, 16. október, eru eigendur og umsjónaraðilar hjartastuðtækja hvattir til að skrá tækin sín í nýja kortasjá hjartastuðtækja. Markmiðið er að auðvelda almenningi og Neyðarlínunni að finna hjartastuðtæki þegar hjartastopp verður en hver mínúta getur skipt sköpum.
Heilbrigðisráðuneytið í samstarfi við fjölda aðila stendur fyrir skráningu hjartastuðtækja á landsvísu. Með verkefninu verður til heildstæð kortasjá yfir hjartastuðtæki á Íslandi þar sem upplýsingar um staðsetningu og aðgengi að tækjunum verða aðgengilegar þegar á reynir. Verkefnið hefur notið styrks af byggðaáætlun stjórnvalda.
Hjartastuðtæki er að finna víða um land, meðal annars á vinnustöðum, íþróttamannvirkjum, skólum og öðrum opinberum byggingum. Þegar hjartastopp verður skiptir máli að vita hvar næsta hjartastuðtæki er að finna. Með skráningu hjartastuðtækja í kortasjána verður auðveldara fyrir almenning og Neyðarlínuna að finna tækin fljótt og bregðast við þegar mest á reynir.
Skráning hjartastuðtækja er þegar hafin og unnið er að því að ná inn sem flestum skráningum áður en kortasjáin verður formlega opnuð.
Skráningarferlið er einfalt og tekur aðeins nokkrar mínútur. Eigendur og umsjónaraðilar hjartastuðtækja geta jafnframt valið hvort upplýsingar um staðsetningu tækisins verði sýnilegar almenningi eða eingöngu aðgengilegar Neyðarlínunni.
Eigendur og umsjónaraðilar hjartastuðtækja eru því hvattir til að taka þátt í verkefninu og skrá tæki í sinni umsjón.
„Hjartastuðtæki geta bjargað lífum, en aðeins ef þau finnast þegar á reynir. Þess vegna skiptir máli að sem flest tæki verði skráð í kortasjána. Ég hvet því alla eigendur og umsjónaraðila hjartastuðtækja til að taka nokkrar mínútur frá og skrá tækin sín. Sú skráning getur skipt sköpum,“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra
Það tekur aðeins örfáar mínútur að skrá hjartastuðtæki. Þegar hjartastopp verður getur sú skráning skipt sköpum.
Fréttin er unnin af Þorbjörgu Katrínu Davíðsdóttur (tkd0926@sak.is) verkefnastjóra skráningar hjartastuðæktja og fengin af vef stjórnarráðsins
Þorbjörg veitir frekari upplýsingar eða viðtöl vegna umfjöllunar ef óskað er. Hún getur einnig veitt upplýsingar um einstaklinga sem eru tilbúnir að segja frá eigin reynslu af því hvernig hjartastuðtæki geta skipt sköpum þegar neyðarástand skapast.