Í tilefni Alþjóðlega endurlífgunardagsins í dag, 16. október, eru eigendur og umsjónaraðilar hjartastuðtækja hvattir til að skrá tækin sín í nýja kortasjá hjartastuðtækja. Markmiðið er að auðvelda almenningi og Neyðarlínunni að finna hjartastuðtæki þegar hjartastopp verður en hver mínúta getur skipt sköpum. Heilbrigðisráðuneytið í samstarfi við fjölda aðila stendur fyrir verkefninu. „Hjartastuðtæki geta bjargað lífum, en aðeins ef þau finnast þegar á reynir. Þess vegna skiptir máli að sem flest tæki verði skráð í kortasjána. Ég hvet því alla eigendur og umsjónaraðila hjartastuðtækja til að taka nokkrar mínútur frá og skrá tækin sín. Sú skráning getur skipt sköpum,“ segir Alma Möller heilbrigðisráðherra
Nánari upplýsingar veitir:
Þorbjörg Katrín Davíðsdóttir
Verkefnastjóri skráningar hjartastuðtækja á landsvísu
Mennta- og vísindadeild Sjúkrahússins á Akureyri
tkd0926@sak.is
852 5601
Þorbjörg veitir frekari upplýsingar eða viðtöl vegna umfjöllunar ef óskað er. Hún getur einnig veitt upplýsingar um einstaklinga sem eru tilbúnir að segja frá eigin reynslu af því hvernig hjartastuðtæki geta skipt sköpum þegar neyðarástand skapast.