Skráning hjartastuðtækja á landsvísu hafin
Heilbrigðisráðuneytið stendur, í samvinnu við samstarfsaðila, fyrir skráningu hjartastuðtækja á landsvísu. Markmiðið er að upplýsingar um staðsetningu hjartastuðtækja verði aðgengilegar almenningi og Neyðarlínunni og stuðli þannig að auknu öryggi og skilvirkari viðbrögðum þegar hjartastopp verður.
Hjartastuðtækin verða skráð í kortasjá sem verður aðgengileg hér á endurlifgun.is. Hægt verður að velja hvort upplýsingar um staðsetningu tækis verði sýnilegar almenningi í kortasjánni eða eingöngu aðgengilegar Neyðarlínunni.
Þegar hjartastopp verður skiptir hver mínúta máli. Því er mikilvægt að upplýsingar um staðsetningu hjartastuðtækja séu réttar og aðgengilegar þegar mest á reynir.
Skráning tækjanna er þegar hafin og unnið er að því að ná inn sem flestum skráningum áður en kortasjáin verður formlega opnuð.
Eigendur og umsjónaraðilar hjartastuðtækja eru hvattir til að taka þátt og skrá tæki í sinni umsjón.
Ert þú með hjartastuðtæki í þinni umsjón?
Skráðu upplýsingar um tækið með því að fylla út skráningarformið eða skanna QR-kóðann hér að neðan.

Þorbjörg Katrín Davíðsdóttir hefur tekið til starfa sem verkefnastjóri skráningar hjartastuðtækja hjá mennta- og vísindadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Ef frekari upplýsingar vanta má líka senda á hana tölvupóst í tkd0926@sak.is