Endurlífgunarráð hefur nú opnað bæði instagram og fésbókarsíðu til að koma enn betur til skila vitundarvakningum sem haldnar eru reglulega til að minna á mikilvægi þess að læra endurlífgun.
Sem samstarfsaðili Evrópska endurlífgunarráðsins tekur Endurlífgunarráð Íslands þátt í vitundarvakningum í kringum alþjóða endurlífgunardaginn 16. október á hverju ári. Ásamt öðrum mikilvægum verkefnum s.s. gulum september og nú vitundarvakningu í tengslum við skráningu hjartastuðtækja á landsvísu.
Til að ná enn betur til almennings var því löngu komin tími á að endurlífgunarráð yrði sýnilegra á samfélagsmiðlum.
Til að ná til sem flestra hvetjum við ykkur til að vera vinir ráðsins á fésbókinni OG fylgja því á Instagram.
Hér eru tenglar á síðurnar. Endilega hjálpið okkur að dreifa skilaboðunum
Instagram: https://www.instagram.com/icerc.resus/