Endurlífgunarnámskeið í Palestínu

Sjúkraflutningaskólinn í samstarfi við Rauða kross Íslands hefur tekið að sér að vera með námskeið í sérhæfðri endurlífgun II fyrir sjúkraflutningamenn,

Endurlífgunarnámskeið í Palestínu

Sjúkraflutningaskólinn í samstarfi við Rauða kross Íslands  hefur tekið að sér að vera með námskeið í sérhæfðri endurlífgun II fyrir sjúkraflutningamenn, hjúkrunarfræðinga og lækna í Palestínu. Er þetta fyrsti áfanginn í því að koma þessari menntun til skila á því svæði. Námskeiðin eru einnig haldin í nafni Endurlífgunarráðs Íslands og kennt samkvæmt stöðlum endurlífgunarráðs Evrópu um slíkt námskeiðshald.

Haldin verða tvö námskeið á tímabilinu 8 – 13. september n.k. og fara þau fram í Ramallah. Kennsluhópurinn að þessu sinni samanstendur af bráðatæknunum Lárusi Petersen, Stefni Snorrasyni, Felix Valssyni, svæfingalækni á LSH og Hildigunni Svavarsdóttur, skólastjóra Sjúkraflutningaskólans sem jafnframt er námskeiðsstjóri. Læknisfræðilegur forsvarsmaður, Freddy Lippert, kemur frá Kaupmannahöfn.
Hópurinn leggur af stað til Tel Aviv 7. september n.k. og kemur heim 14. september.

Það er von þeirra sem staðið hafa að þessum undirbúningi að námskeiðin gangi vel og vonandi verða fleiri slík verkefni í gangi í framtíðinni.


Endurlífgunarráð Íslands