Sérhæfð endurlífgun

Námskeið í sérhæfðri endurlífgun á Íslandi eru stöðluð samkvæmt leiðbeiningum evrópska endurlífgunarráðsins (ERC). Í maí 2008 var skrifað undir gagnhliða

Sérhæfð endurlífgun

Námskeið í sérhæfðri endurlífgun á Íslandi eru stöðluð samkvæmt leiðbeiningum evrópska endurlífgunarráðsins (ERC). Í maí 2008 var skrifað undir gagnhliða samning Endurlífgunarráðs Íslands og evrópska endurlífgunarráðsins (ERC) varðandi námskeiðshald samkvæmt þeirra stöðlum, aðkomu fulltrúa Íslands í ERC auk annarra tengdra málefna endurlífgunar. Öll námskeiðin sem kennd eru hér á landi eru faglega á ábyrgð Endurlífgunarráðs Íslands. Leiðbeinendur á námskeiðum skulu vera með réttindi frá ERC og viðhalda réttindum sínum samkvæmt kröfum ERC og Endurlífgunarráðs Íslands.

Endurlífgunarráð Íslands, f.h. LandlæknisembættisinsLandspítala og Sjúkraflutningaskólinn / Sjúkrahúsið á Akureyri hafa gert samkomulag um fyrirkomulag með umsjón og skipulagningu námskeiða í sérhæfðri endurlífgun á vegum Endurlífgunarráðs Íslands. Námskeið í sérhæfðri endurlífgun á Íslandi eru stöðluð samkvæmt leiðbeiningum ERC. Samkvæmt samningi þessum geta Landspítali (endurlífgunarnefnd Landspítala) og Sjúkrahúsið á Akureyri (Sjúkraflutningaskólinn eða endurlífgunarráð Sjúkrahússins á Akureyri) skipulagt og haldið námskeið í sérhæfðri endurlífgun.

Sjá má frekari upplýsingar um gerðir námskeiða auka upplýsinga um næstu námskeið undir flipanum námskeið hér að ofan.

Endurlífgunarráð Íslands